Binni. Myndir frá Ólafsfirði 1930-1980
Opið frá: 14.00 - 17.00
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu
Nú er að renna upp síðasta sýningarhelgi á sýningu á ljósmyndum Brynjólfs Sveinssonar frá Ólafsfirði sem ber heitið: „Binni. Myndir frá Ólafsfirði 1930-1980“.
Af því tilefni verður boðið upp á leiðsögn um sýninguna, sunnudaginn 8. mars kl 14, í Sjóminjasafninu í Reykjavík, Grandagarði 8.
Á sýningunni eru hundrað ljósmyndir af atvinnulífi, viðburðum og fólki í Ólafsfirði frá þessu tímabili, auk nokkurra stuttra kvikmynda frá fjórða og fimmta áratug 20. aldar.
Brynjólfur (1914-1981) var áhugaljósmyndari, kaupmaður og stöðvarstjóri Pósts og síma í Ólafsfirði. Ragnheiður og Helga Pálína, dætur Brynjólfs, leiða gesti um sýninguna klukkan 14 á sunnudaginn.
Sjóminjasafnið og kaffihús þess er opið alla daga frá kl 10-17, og vert er að geta þess að það verður kaffihlaðborð á sunnudag.