Listamannaleiðsögn | Venjulegar myndir

Hamraborg 4, 200 Kópavogur

Dagsetningar
Gerðarsafn
27, mars 2024
Opið frá: 12.15 - 13.00

Vefsíða https://gerdarsafn.kopavogur.is/event/leidsogn-um-venjulega-stadi-2/
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Ívar Brynjólfsson veitir leiðsögn og innsýn í verk sín á sýningunni Venjulegir myndir í Gerðarsafni. Öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir og aðgangur er ókeypis.

-----------

Sýningin Venjulegar myndir birtir ljósmyndir Ívars Brynjólfssonar í samtali við verk Emmu Heiðarsdóttur, Haraldar Jónssonar, Joe Keys, Kristínar Sigurðardóttur, Lukas Kindermann, Ragnheiðar Gestsdóttur og Tine Bek. Listamenn sýningarinnar eiga það sameiginlegt að veita ákveðnum hlutum ítrustu athygli, brengla hversdaginn með því að fletja hann út eða umbreyta með öðrum hætti.

Á sýningunni myndast samtal á milli myndaraða Ívars frá árunum 1991-2023 við skúlptúra, vídeóverk, ljósmyndaverk og innsetningar sem einnig spretta úr skynjun mannverunnar á umhverfi sínu.

Sýningin opnar í tveimur fösum en á milli sala þróast og breytist umfjöllunarefni og nálgun listamanna sýningarinnar.

Venjulegir staðir opnar í vestursal Gerðarsafns 13. janúar þar sem sjónarhorn ljósmyndarinnar er kannað með verkum sem vísa í staðleysur, hversdagsleika og brenglun hans.

Venjulegar myndir opnar í austursal Gerðarsafns 10. febrúar þar sem ljósmyndatæknin sjálf verður könnuð með vísunum í eðli miðilsins og samband ljósmyndarinnar við vísindi sem og náttúruleg fyrirbæri.

Svipaðir viðburðir

Tungumálablóm - gagnalist
Draumaskólinn minn - ókeypis smiðja f. 1.-7. bekk
Hvíldartónleikar með Sigga&Ingibjörgu
Lýðræði dýranna? Ókeypis fjölskyldusmiðja.
Krakkar sýna leikrit
Gróður í Grafarvogi
Lúðrasveitin Svanur
Gamla Reykjavík - Krakkaleiðsögn á táknmáli
Alheimur, hvað er hljóð?
Krakkaþing Fíusólar - Opin dagskrá
Kósýhorn Borgarbókasafnsins
Maximús Músíkús
Opnunarhátíð UNGA sviðslistahátíðar
Tumi fer til tunglsins
Nýjustu töfrar og vísindi
Prakkarasmiðjan
Hljómferðalag með Dj. Flugvél og geimskip
Litli Punktur og stóri Punktur
Stemmari
Fellakrakkar

#borginokkar