Reykjavík Cocktail Weekend
03, apríl 2024
Opið frá: 17.00 - 23.00
Vefsíða
http://rcw.is/
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu
Stærsta kokteilahátíð Íslands, Reykjavík Cocktail Weekend verður haldin 3. – 7. Apríl!
Barþjónaklúbbur Íslands stendur fyrir þessari árlegu hátíð í samstarfi við alla helstu vínbirgja, veitingahús og bari Reykjavíkur.
Hátíðin byrjar með pomp og prakt á miðvikudaginn 3. apríl í Hörpu með Reykjavík Cocktail Weekend Expo! Þar fer fram Íslandsmeistaramót barþjóna þar sem leitin af besta barþjón landsins hefst, ásamt vörukynningum allra helstu vínbirgja landsins.
Húsið opnar klukkan 17:00 og er opið öllum þeim sem hafa áhuga á vínmenningu og kokteilum.
Þetta er kvöld sem þú vilt ekki missa af!
Á meðan á hátíðinni stendur verða sérstakir Reykjavík Cocktail Weekend kokteila seðlar í boði á stöðunum sem taka þátt og verða þeir drykkir á sérstöku tilboðasverði.
Staðirnir munu bjóða uppá fjölda viðburða tengda hátíðinni sem eru öllum opnir.