Sagan af Gýpu
27, apríl 2024
Opið frá: 13.30 - 14.00
Vefsíða
http://assitej.is
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu
Töfrabækurnar- Sagan um Gýpu er u.þ.b hálftíma löng brúðuleiksýning fyrir yngstu kynslóðina. Gýpa er með eindæmum matgráðug og mesta furða að hún hafi ekki verið búin að éta heimilisfólk út á gaddinn. Að lokum kemst hún að því að það er ekki skynsamlegt að borða allt sem hún sér.
Sýninguna prýða lög eftir Vandræðaskáldin Sesselíu Ólafsdóttur og Vilhjálm B. Bragason.
Sýningin er “afslöppuð” sem þýðir að hún er aðgengileg fyrir skynsegin börn.
Sýningin sem er 30 mínútur verður sýnd í Tjarnarbíó, laugardaginn 27. apríl kl 13.30 og kl 14.30. Aðeins komast 45 gestir á hverja sýningu þannig að við biðjum fólk um panta miða sem eru ókeypis á ungipostur@gmail.com eða ná í miða hálftíma fyrir sýningu.