TENEBRAE FACTAE SUNT - Kórtónleikar á föstu

Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavík

Dagsetningar
Hallgrímskirkja
24, mars 2024
Opið frá: 17.00 - 18.00

Vefsíða https://www.hallgrimskirkja.is/is/dagatal/dagatal-listi/tenebrae-factae-sunt-kortonleikar-a-fostu
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Sunnudagur 24. mars kl . 17
Kór Hallgrímskirkju
Steinar Logi Helgason stjórnandi

Miðasala fer fram í Hallgrímskirkju og á tix.is
Miðaverð 3.500 kr.

Á tónleikunum hljóma meðal annars verk eftir Poulenc, Messiaen, Pärt, Tavener, Macmillan, Gesualdo og Mäntyjärvi. Einnig verða frumflutt ný verk eftir Ingibjörgu Ýr Skarphéðinsdóttur og Finn Karlsson sem samin voru sérstaklega fyrir Kór Hallgrímskirkju.

Kór Hallgrímskirkju var stofnaður haustið 2021 og telur nú yfir 50 manns. Kórinn hefur frá stofnun tekið þátt í helgihaldi í Hallgrímskirkju ásamt því að sinna tónleikahaldi og upptökum. Hann hefur lagt mikið uppúr flutningi á íslenskri kórtónlist og það er mikilvægur hluti kórstarfsins að stuðla að nýsköpun með frumflutningi nýrra tónverka. Haustið 2022 frumflutti kórinn fimm ný verk eftir íslensk tónskáld sem samin voru sérstaklega fyrir hann. Kór Hallgrímskirkju hefur einnig átt í gjöfulu samstarfi við Barokkbandið Brák en síðustu tónleikar Kórs Hallgrímskirkju og Brákar voru þann 21. maí og voru tileinkaðir tónlist Telemann og Händel. Steinar Logi Helgason er stjórnandi kórsins.

Steinar Logi Helgason hóf störf sem kórstjóri Hallgrímskirkju í ágúst 2021. Steinar Logi lærði á píanó í Tónmenntaskóla Reykjavíkur, Nýja Tónlistarskólanum og í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Hann hóf nám í Tónskóla Þjóðkirkjunnar árið 2010 og kláraði þar kirkjuorganistapróf og lauk síðar bakkalársgráðu úr Kirkjutónlistarbraut Listaháskóla íslands undir handleiðslu Björns Steinars Sólbergssonar.
Steinar Logi stundaði meistaranám í ensemble conducting við Konunglegu tónlistarakademíuna í Kaupmannahöfn og útskrifaðist þaðan í árslok 2020. Steinar hefur stjórnað fjölda kóra og starfað sem organisti, píanisti og stjórnandi á mörgum vígstöðum. Hann var tilnefndur ásamt Cantoque ensemble sem tónlistarhópur ársins 2021 í flokki Sígildrar- og samtímatónlistar.

Kór Hallgrímskirkju á samfélagsmiðlum:
Instagram: https://www.instagram.com/kor_hallgrimskirkju
Facebook: https://www.facebook.com/kor.hallgrimskirkju
YouTube: https://www.youtube.com/@korhallgrimskirkju1167

Svipaðir viðburðir

Uppskeruhátíð – Marta Staworowska gullsmiður
Á mínu máli: skart:gripur – leiðsögn á pólsku
Allir með
Gægjusýning - Ekki kíkja, þetta er list
Hvað er mold?
Það sem vantar – Myndlistarsýning Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar
Listasýning Laugó
skart:gripur
Síðdegistónar í Hafnarborg – Blúsband Maríu
Myndlistarsýning Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar
Myndlistarsýning S78 og Tjarnarinnar
Reflar og skildir
Together | Palestínsk útsaumssmiðja
BIRKIÐ Í VERKUM ÁSGRÍMS JÓNSSONAR – Birkirannsókn
ÍSABROT– jöklar í íslenskri myndlist
Framtíðarblóm
Eldur, ís og mjúkur mosi
Hinsegin Prom
Byggingarlist, Breiðholtið og borgin okkar
Allir hafa rödd - Leiksýning barnanna á Bergi

#borginokkar