Hannyrða- og bókahittingur

Tryggvagata 15, 101 Reykjavík

Dagsetningar
Borgarbókasafnið Grófinni
01, febrúar 2024 - 18, apríl 2024 (sjá dagatal fyrir aðrar dagsetningar)
Opið frá: 15.00 - 16.00

Vefsíða https://borgarbokasafn.is/hannyrdastundir
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Ertu ástríðufullur prjónari eða heklari sem elskar líka að lesa og spjalla um skemmtilegar bækur? Þá er þessi hittingur á bókasafninu eitthvað fyrir þig.

Það er gaman að sameina þessi tvö áhugamál og enn betra að geta hitt góðan hóp sem deilir þessari ástríðu.
Við ætlum að koma saman á fimmtudögum kl. 15 í Hannyrðahorninu á 2. hæð í Borgarbókasafninu Grófinni í febrúar, mars og apríl.

Umsjón með hittingnum hefur Guðrún Dís, áhugasamur nýgræðingur í hannyrðum sem mun halda utan um hópinn, koma með hugmyndir að skemmtilegu lesefni og leiða spjallið.
Ekki er um hefðbundinn leshring að ræða og því þarf ekki að lesa ákveðnar bækur fyrir hvern hitting, aðeins mæta á staðinn og taka þátt í spjallinu.

Hittingarnir fara fram á íslensku og/eða ensku og tekur mið af samsetningu hópsins.

Engin skráning og þú mætir bara þegar þig langar í félagsskap.

Nánari upplýsingar veitir:

Guðrún Dís Jónatansdóttir
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is | 411 6115

Svipaðir viðburðir

Uppskeruhátíð – Marta Staworowska gullsmiður
Á mínu máli: skart:gripur – leiðsögn á pólsku
Allir með
Það sem vantar – Myndlistarsýning Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar
Listasýning Laugó
Gægjusýning - Ekki kíkja, þetta er list
Hvað er mold?
Síðdegistónar í Hafnarborg – Blúsband Maríu
Myndlistarsýning Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar
skart:gripur
Myndlistarsýning S78 og Tjarnarinnar
Together | Palestínsk útsaumssmiðja
Reflar og skildir
BIRKIÐ Í VERKUM ÁSGRÍMS JÓNSSONAR – Birkirannsókn
ÍSABROT– jöklar í íslenskri myndlist
Framtíðarblóm
Eldur, ís og mjúkur mosi
Hinsegin Prom
Byggingarlist, Breiðholtið og borgin okkar
Regnbogi meistarans

#borginokkar