Matti og Maurún - Hulinn heimur íslenskra maura

Laugavegur 7, 101 Reykjavík

Dagsetningar
Epal
24, apríl 2024 - 08, maí 2024 (sjá dagatal fyrir aðrar dagsetningar)
Opið frá: 18.00 - 20.00

Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Sýning og útgáfa myndlýstrar barnabókar um íslenska maura, Matti og Maurún - Hulinn heimur íslenskra maura. Á sýningunni skoðum við furðuverk mauraríkisins, rýnum í myndheiminn sem Laufey Jónsdóttir skapaði fyrir bókina og sjáum íslenska maura stíga á stokk í iðandi maurabúi. Sýningin stendur frá 24. apríl til 8. maí.

SÉRSTAKIR VIÐBURÐIR:
Útgáfuhóf bókar / Miðvikudaginn 24. apríl kl. 18:00 - 20:00 / Facebook viðburður: https://fb.me/e/4mx39slnU
Upplestur höfundar og maurasýning / Laugardaginn 27. apríl kl. 14:00 / Facebook viðburður: https://fb.me/e/zgimqvWWA

Rithöfundurinn og líffræðingurinn Marco Mancini hefur rannsakað maura á Íslandi frá árinu 2019 og deilt undrum mauraheimsins í fjölmiðlum, á vefsíðunni „Maurar á Íslandi” og nú í þessari fallega myndskreyttu bók.

Þetta er önnur barnabók myndhöfundarins og grafíska hönnuðarins Laufeyjar Jónsdóttur. Fyrri bók hennar, „Milli svefns og Vöku”, hlaut tilnefningu til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar fyrir myndskreytingar og viðurkenningu frá Félagi íslenskra teiknara í flokknum myndlýsingasería.

Matti og Maurún - Hulinn heimur íslenskra maura
„Leggðu af stað í hugljúft ævintýri með Maurúnu og Matta til að komast í kynni við ótrúlegan heim leynilegrar mauranýlendu á íslenskum leikskólavelli. Taktu þátt í sérstakri vináttu þeirra sem er fyllt gleði, forvitni og sögum sem leiða í ljós mikil stórmerki undir fótum okkar.“

Saga og enskur texti: Marco Mancini
Teikningar og hönnun: Laufey Jónsdóttir
Íslensk þýðing: Andreas Guðmundsson Gähwiller
Sérfræðingur í kennslufræði: Caterina Poggi
Útgefandi: Bókafélagið

Styrktaraðilar bókar: Þróunarsjóður námsgagna og Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn
Styrktaraðili viðburðar: Reykjavíkurborg

Opnunartímar sýningarinnar á Barnamenningahátíð:
Miðvikudag: 18:00 - 20:00
Fim - Lau: 10:00 – 18:00
Sunnudag: 11:00 – 18:00

Svipaðir viðburðir

HönnunarMars: Mannlif, byggð og bæjarrými
HönnunarMars: Híbýlaauður
HönnunarMars: Nýting og nægjusemi
HönnunarMars: ENDURTAKK x Rauði kross Íslands
HönnunarMars: After Stone
Uppskeruhátíð – Marta Staworowska gullsmiður
HönnunarMars: Stofnendur FÍT
Á mínu máli: skart:gripur – leiðsögn á pólsku
Allir með
Sjálfsmyndir og minningar
Það sem vantar – Myndlistarsýning Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar
Listasýning Laugó
Gægjusýning - Ekki kíkja, þetta er list
Matti og Maurún - Hulinn heimur íslenskra maura
Hvað er mold?
Ertu normal? Ljósmyndasýning
Síðdegistónar í Hafnarborg – Blúsband Maríu
Myndlistarsýning Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar
skart:gripur
Tónleikar með Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar

#borginokkar