Naglinn | Biðin IV

Sólheimar 23, 104 Reykjavík

Dagsetningar
Borgarbókasafnið Sólheimum
04, nóvember 2022 - 04, janúar 2023 (sjá dagatal fyrir aðrar dagsetningar)
Opið frá: 10.00 - 19.00

Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Listaverkið Biðin IV eftir Gíslínu Dögg Bjarkadóttur verður til sýnis á Naglanum í Borgarbókasafninu Sólheimum frá 4. nóvember fram í byrjun janúar. Verkið er fengið að láni úr Artótekinu, sem er til húsa í Borgarbókasafninu Grófinni.

Gíslína útskrifaðist úr textíl- og fatahönnun frá Listaháskóla Íslands árið 2004 og hefur ásamt því kennsluréttindi í Listgreinum. Mörg verk Gíslínu vísa í sögu kvenna, sérstaklega þeirra nafnlausu hvunndagshetja sem sköpuðu söguna, listina og lífið, en hafa gleymst með tímanum. Verk Gíslínu eru fjölbreytt og hefur hún notað ýmsa tækni í verkum sínum ásamt því að hafa verið með innsetningar og aðra listgjörninga

Freyja Rein, starfsmaður á Borgarbókasafninu í Sólheimum valdi verkið og lýsti því svona: „Loftið er að breytast. Veturinn er að koma. Mér finnst hún standa þarna og bíða eftir honum eins og gömlum kunningja. Seinustu litbrigði sumarsins umvefja og undirbúa hana fyrir það sem koma skal.“

Naglinn er heitið á sýningaröð á Borgarbókasafninu Sólheimum. Biðin IV er 12. sýningin í röðinni en hver sýning samanstendur af einu listaverki. Áhugasamir geta keypt verkið eða leigt það á kaupleigu, þá eignast viðkomandi verkið þegar það hefur verið greitt upp. Sé sýningarverkið keypt (eða leigt) má kaupandinn velja úr Artótekinu hvaða verk verður næst til sýnis á Naglanum.

Hægt er að leigja verkið Biðin IV á 2.000 kr. á mánuði eða kaupa á 42.000 kr.

Nánari upplýsingar um Artótekið, listamanninn og verkið á heimasíðu Artóteksins https://www.artotek.is/

Nánari upplýsingar veita:

Lísbet Perla Gestsdóttir
lisbet.perla.gestsdottir@reykjavik.is | s. 411 6160

Hólmfríður Gunnlaugsdóttir
holmfridur.gunnlaugsdottir@reykjavik.is | s. 411 6112

Svipaðir viðburðir

Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10
J.S. Bach á þriðjudagskvöldum 20:00 - 20:30

#borginokkar