Jólasukkið

Hverfisgata 19, 101 Reykjavík

Dagsetningar
Þjóðleikhúsið
10, desember 2021 - 18, desember 2021 (sjá dagatal fyrir aðrar dagsetningar)
Opið frá: 21.00 - 23.00

Vefsíða https://leikhusid.is/syningar/jolasukkid
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Jólahlaðborðið sem við eigum öll skilið! Jólahefðum snúið hressilega á hvolf í glæsilegum kabarett sem blandar saman fullorðinssirkus, dragi og burleski. Margrét Erla Maack sér um hlaðborð skemmtiatriða þar sem bestu, fyndnustu og fegurstu fjöllistamenn landsins snúa bökum saman. Ekkert kvöld er eins, en öll eru þau skemmtileg. Búðu þig undir kvöld stútfullt af mat, íburði, hlátri, glimmeri, perlum, drykkjum og dónalátum. Barinn skartar sínu fegursta og matreiðslufólk kjallarans galdrar fram jólalegar kræsingar. Tilvalið fyrir vinahópinn og vinnustaðinn til að sletta ærlega úr klaufunum. Vinsamlega athugið að Jólasukkið er fyrir þau sem hafa náð 20 ára aldri og hentar ekki þeim sem óttast undur mannslíkamans. Listrænn stjórnandi veitinga er Ólafur Ágústsson, matreiðslumeistari. Matseðil má sjá á heimasíðu viðburðarins: https://leikhusid.is/syningar/jolasukkid

Engin sýning er eins en á hverri sýningu er hlaðborð skemmtikrafta í fremstu röð: Burlesque-drottning Íslands Margrét Erla Maack, dragstjarnan Gógó Starr, burlesktrúðurinn Maísól, hinn sykursæti kvartett Barbari, sirkusfolinn Dan the Man, boylesquestjarnan Mr. Gorgeous, hin íðilfagra Maine Attraction, furðuveran Tiger Bay auk leynigesta.

Svipaðir viðburðir

uppreisn
J.S. Bach á þriðjudagskvöldum 20:00 - 20:30
Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10

#borginokkar