FULLBÓKAÐ! - Rit- og teiknismiðja | 9-12 ára

Spöngin 41, 112 Reykjavík

Dagsetningar
Borgarbókasafnið Spönginni
25, september 2021
Opið frá: 13.00 - 15.00

Vefsíða https://borgarbokasafn.is/vidburdir/born/sogur-rit-og-teiknismidja-9-12-ara
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Viltu búa til fyndna og spennandi sögu?

Stutt, skapandi námskeið fyrir 9-12 ára krakka sem vilja skrifa sögur og/eða teikna.

Athugið að smiðjan er fullbókuð. Hægt er að skrá sig á biðlista með því að senda tölvupóst á netfangið ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is

Á námskeiðinu læra krakkar að búa til til skemmtilegar persónur og hvernig hægt að er að skrifa eða teikna sögu um þær sem er bæði fyndin og spennandi.

Þátttakendur mæta tvisvar sinnum; laugardaginn laugardaginn 25.sept og laugardaginn 9.okt og vinna í sögunni sinni þess á milli.
Eva Rún og Blær eru höfundar bókanna um jólasveininn Stúf; Stúfur hættir að vera jólasveinn og Stúfur leysir ráðgátu. Nú vinna þær að nýrri bók um Stúf og þátttakendur fá að skyggnast inn í sköpunarferlið og prófa að taka þátt í því!

Leiðbeinendur:
Eva Rún Þorgeirsdóttir er rithöfundur og skrifar bækur og handrit að sjónvarpsefni fyrir krakka. Hún hefur skrifað bækurnar um jólasveininn Stúf, spennuseríuna um Lukku og hugmyndavélina og hugleiðslubókina Ró. Auk þess hefur hún m.a. unnið sem handritshöfundur og framleiðandi sjónvarpsþátta á KrakkaRÚV.
Blær Guðmundsdóttir er teiknari, barnabókahöfundur og grafískur hönnuður. Hún hefur myndskreytt barnabækur þ.á.m. bækurnar um Stúf. Árið 2019 sendi hún frá sér sína fyrstu frumsömdu bók, Sipp, Sippsippanipp og Sippsippanippsippsúrumsipp – systurnar sem ætluðu sko ekki að giftast prinsum. Blær vann FÍT-verðlaunin 2020 fyrir þessa frumraun sína og hlaut einnig tilnefningu til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar í flokki myndlýstra bóka.

Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, verkefnastjóri barna- og unglingastarfs
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 411-6146

Svipaðir viðburðir

J.S. Bach á þriðjudagskvöldum 20:00 - 20:30
Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10

#borginokkar