Gönguferð með leiðsögn um Tjörnina
11, júlí 2021 - 14, ágúst 2021
(sjá dagatal fyrir aðrar dagsetningar)
Opið frá: 14.00 - 15.00
Vefsíða
//www.listasafn.is
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu
Sumarborgin / Gönguferð með leiðsögn um Tjörnina
Sunnudaginn 11. júlí
Gönguferð með leiðsögn frá Listasafni Íslands þar sem gengið verður í kringum Tjörnina í Reykjavík. Fríkirkjan, Listasafn Íslands, höggmyndir bæjarins, hús við Tjarnagötu, Ráðhúsið, Iðnó og fleiri áhugaverðir staðir verða teknir fyrir í lifandi og skemmtilegri göngu með leiðsögn fyrir almenning.
Leiðsögnin endar í Safnahúsinu við Hverfisgötu.
Vala Pálsdóttir leiðir gönguna sem byggð er á handriti sem skrifað er af Guðjóni Friðrikssyni, sagnfræðingi.
Aðgangseyrir á safnið gildir, ókeypis fyrir meðlimi Selmuklúbbsins.
Verkefnið er styrkt af Reykjavíkurborg / Sumarborgin