Leikhúskaffi - Sjálfstætt fólk
Opið frá: 20.00 - 22.00
Vefsíða
http://www.borgarbokasafn.is
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu
Í Leikhúskaffi Gerðubergs miðvikudaginn 25. febrúar næstkomandi mun Símon Birgisson, dramatúrg Þjóðleikhússins, stýra dagskrá um leikverkið Sjálfstætt fólk sem sýnt er um þessar mundir. Með Símoni verða Atli Rafn Sigurðsson leikari, sem leikur sjálfan Bjart í Sumarhúsum, og Hlín Agnarsdóttir leiklistargagnrýnandi.
Í Leikhúskaffi Gerðubergs gefst áhorfendum kostur á að kafa dýpra í verkið, uppsetninguna og tengsl skáldsögunnar og leikritsins. Áhorfendur fá að heyra um upplifun leikarans og gagnrýnandans og spyrja aðstandendur sýningarinnar spurninga yfir notalegum kaffibolla á nýja kaffihúsinu á efri hæð Gerðubergs. Leikhúskaffi í Gerðubergi er samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins og Þjóðleikhússins og fer fram fjórum sinnum á vormisseri 2015. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.