Sýning |Drawn together

Tryggvagata 15, 101 Reykjavík

Dagsetningar
Borgarbókasafnið Grófinni
09, nóvember 2021
Opið frá: 10.00 - 19.00

Vefsíða https://borgarbokasafn.is/vidburdir/born/syning-drawn-together
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Angela og Jurgita sýna klippimyndir og verk sem eru unnin með blandaðri tækni.

Tvær konur með ólíkan bakgrunn frá sitt hvoru landinu hittast í Reykjavík. Þær eiga ýmislegt sameiginlegt;eru erlendar konur á Íslandi og það er áskorun fyrir þær báðar að sanna sig í íslensku samfélagi.

Þær hittust í alþjóðlegri menntunarfræði í Háskóla Íslands og hafa báðar ástríðu fyrir listsköpun. Það var af ólíkum ástæðum sem þær flutti til Íslands og líf þeirra, menning og starf sömuleiðis. Þær eiga listsköpun sameiginlega og eru báðar eiginkonur og mæður.

Jurgita og Angela hafa starfað við misjafna listræna miðla og hafa fjölbreytta reynslu í listsköpun. Þær eru báðar mjög tjáningaríkar og næmar fyrir samfélaginu sem þær búa í og heiminum í heild sinni.

Á sýningunni skoða tvær listakonur sérkenni sín og einnig það sem sameinar, en þær hittast af fallegri tilviljun. Sýningin sýnir leið tveggja listakvenna inn í íslenska menningu og er mikilvægt skref, að vefa sína eigin litríku þræði í íslenskt menningarmunstur.

Fyrir nánari upplýsingar:

Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, deildarbókavörður

gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is

Svipaðir viðburðir

Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10

#borginokkar