Nauth%C3%B3lsv%C3%ADk%20-%20afrit

Ylströndin í Nauthólsvík

Nauthólsvegur 100, Reykjavík 101, 511 6630

Vefsíða: https://nautholsvik.is/

Á Ylströndinni í Nauthólsvík er heitu vatni úr hitaveitunni veitt í tvo potta og auk þess í sjóinn í víkinni en hún hefur verið afmörkuð með garði að austanverðu til að takmarka vatnsskiptin. Víkin er þó opin út í voginn og gætir þar flóðs og fjöru og blandast sjórinn heita vatninu.

Sandströnd er í víkinni og góð aðstaða til útivistar. Skiptiaðstaða og ýmis þjónusta er á svæðinu.

Sumaropnun 15. maí - 15. ágúst
Alla daga milli kl. 10:00 - 19:00.

Vetraropnun 16. ágúst -14. maí
Mánudaga og miðvikudaga kl. 11:00 -14:00 og 17:00 - 20:00
Föstudaga milli kl. 11:00-14:00
Laugardaga milli kl. 11:00 - 16:00

#borginokkar