adalmynd

Kaolin Keramik Galleri

Skólavörðustígur 5, Reykjavík 101, 5552060

Opnunartími:
mán - fös: 12.00 - 18.00
lau: 12.00 - 16.00

Vefsíða: https://kaolin.is/

Við erum nokkrir frábærir keramikhönnuðir og leirlistamenn í félagi sem heitir Listamannafélagið Kaolin. Við rekum gallerí á Skólavörðustíg 5, Kaolin Keramik Galleri og þar er til sölu og sýnis verk eftir okkur. Galleríið er sérstakt á landvísu því það er eina samvinnufélags galleríið þar sem eingöngu eru seld verk úr leir og allir listamennirnir eru konur. Við erum ólíkar eins og sést á verkum okkar, hver með sinn eigin stíl en heildarsýnin í galleríinu er þrátt fyrir það falleg og spennandi. Við skiptumst á að standa vaktina í galleríinu og því geta gestir alltaf gengið að einhverri okkar vísri þar. Gestum finnst gaman að hitta á listamennina sjálfa til að spjalla um efni og aðferðir við gerð verkanna. Það er oft kátt á hjalla hjá okkur stöllum. Vikulega setjum við upp nýja smásýningu í glugganum okkar sem snýr út á Skólavörðustíginn. Við erum öðru hvoru með einhverjar skemmtilegar uppákomur þar sem við gerum okkur og viðskiptavinum okkar glaðan dag með alls kyns sýningum og fjölbreytilegum viðburðum.

#borginokkar