Ragnar_Th

Hvalasýningin Whales of Iceland

Fiskislóð 23, Reykjavík 101, (+354) 571 0077

Opnunartími:
mán - sun: 10.00 - 17.00

Vefsíða: https://www.whalesoficeland.is/

Hvalasýningin samanstendur af 23 hvalalíkönum af hinum ýmsu hvalategundum sem fundist hafa í Íslensku hafi. Þar er t.d. að finna 25 m. langan steypireið, búrhval í fullri stærð og Íslandssléttbak sem nú er í bráðri útrýmingahættu og margt fleira! Allt í raunverulegum stærðum!

Mikil vinna var lögð í hönnun á líkönunum og eru öll módelin handmáluð og hægt að sjá á þeim persónuleg einkenni sem rekja má til raunverulegs hvals í hafinu. Líkönin eru mjúk og nokkuð raunveruleg í snertingu sem eykur upplifunargildi sýningarinnar.

Með gagnvirkum upplýsingaskjám, róandi hvalahljóðum, neðansjávar lýsingu og svörtu og gulu sandgólfi er Hvalasýningin, Whales of Iceland eins og draumkenndur ævintýraheimur fyrir alla fjölskylduna.",

#borginokkar