H%C3%B6fu%C3%B0st%C3%B6%C3%B0in%20%281%29

Höfuðstöðin

Rafstöðvarvegur 1, Reykjavík 110, 550 0077

Opnunartími:
mán - fös: 10.00 - 18.00
lau - sun: 11.00 - 17.00

Vefsíða: www.hofudstodin.com

Höfuðstöðin er nýtt lista- og menningarhús staðsett í tveimur bröggum gömlu kartöflugeymslnanna í Ártúnsbrekku við Elliðaárdal. Stofnendur eru Hrafnhildur Arnardóttir / Shoplifter og Lilja Hrönn Baldursdóttir og hýsir Höfuðstöðin innsetningu Hrafnhildar, Chromo Sapiens, sem var framlag Íslendinga til Feneyjartvíæringsins árið 2019. Er þetta í fyrsta sinn á Íslandi sem kona opnar eigið menningarhús undir verk sín. Auk sýningarinnar er Höfuðstöðin með hönnunarverslun og kaffihús sem býður upp á léttar veitingar.

#borginokkar