IMG_0071

Hið íslenska Reðasafn

Kalkofnsvegur 2, Reykjavík 101, 5616663

Opnunartími:
mán - sun: 10.00 - 19.00

Vefsíða: www.phallus.is

Hið Íslenzka Reðasafn er væntanlega hið eina sinnar tegundar í heiminum, þar sem saman hefur verið safnað reðum af allri spendýrafánu eins lands.

Safnið var stofnað árið 1997 af Sigurði Hjartarsyni, þá kennara á eftirlaunum, og er nú rekið af syni hans, Hirti Gísla Sigurðssyni. Uppsprettan er áhugi Sigurðar á getnaðarlimum sem átti rætur að rekja til barnæsku hans þegar hann fékk svipu að gjöf er gerð var úr nautsreðri. Hann fékk líffærin úr íslenskum dýrum víðs vegar að, frá 170 sm framenda af getnaðarlimi steypireyðs til 2 mm limbeins hamsturs, sem eingöngu er sjáanlegt með stækkunargleri. Safnið segir að úrval sitt innihaldi reður álfa og trölla þrátt fyrir að lýsingar veranna í þjóðsögunum hermi að þær séu ósýnilegar, og geta því safngestir ekki borið þá gripi augum. Safnið sýnir jafnframt ýmis verk gerð úr kynfærum, til að mynda lampaskerma úr nautaeistum.

Reðurfræði eru aldagömul vísindi sem til þessa hefur lítt verið sinnt á Íslandi, nema þá sem afleggjara annarra fræða, t.d. sagnfræði, listfræði, sálfræði, bókmennta og ýmissa lista, svo sem tónlistar og balletts.

Nú er hins vegar unnt að stunda reðurfræði á skipulegan og vísindalegan hátt, þökk sé Hinu Íslenzka Reðasafni.

Hið Íslenzka Reðasafn telur nú 217 reði og reðurhluta af nálega öllum land- og sjávarspendýrum hinnar íslensku fánu. Í safninu eru 56 eintök af 17 tegundum hvala, 1 eintak af bjarndýri, 38 eintök af 7 tegundum sela og rostunga og 120 eintök af 21 tegund landspendýra, eða alls um 220 eintök af 47 dýrategundum, þar með talið eintak af Homo Sapiens. Við þetta bætast loforð fyrir þremur eintökum af tegundinni Homo Sapiens og eru vottfest gjafabréf því til staðfestingar.

Auk þessa er að finna í safninu Þjóðfræðideild með 23 eintökum af 19 tegundum og erlenda deild með 42 eintök af 28 tegundum. Samtals eru því í safninu 282 eintök af 93 tegundum. Auk hins vísindalega þáttar hefur safnið að geyma um þrjú hundruð listgripa og nytjahluta er tengjast viðfangsefnum safnsins.

Reðasafnið er skemmtilegt og áhugavert safn sem enginn ætti að láta framhjá sér fara!

#borginokkar