308701852_10160475406502940_1086820054174249951_n_0

Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn

Múlavegur 1, Reykjavík 104, 4115900

Vefsíða: https://mu.is/

Fjölskyldu- og Húsdýragarðurinn er góð afþreying fyrir fjölskylduna alla daga ársins.

Ekki bara húsdýr
Í garðinum eru fleiri dýr en margan grunar. Íslensk húsdýr, villt íslensk spendýr, fuglar og framandi dýr frá ýmsum heimshornum.

Afþreying fyrir alla allt árið
Á sumrin eru leiktæki opin og um helgar á veturna sé þess kostur. Kastalar, hlaupaköttur og fleira er alltaf opið. Síðan er líka gaman að rölta um í fallegu umhverfi.

Brostu hringinn
Höfum gaman saman í garðinum. Rúmlega 170.000 gestir árlega framkalla breiðasta brosið í bænum.

Veitingar
Veitingahús er rekið allt árið í garðinum og að auki er sjoppa í Fjölskyldugarðinum á sumrin. Rafmagnsgrill standa öllum gestum til boða og þar er hægt að elda sinn eigin mat.

#borginokkar