143-4325_IMG

Draumaland Frístundaheimili

Barónsstígur 32, Reykjavík 101, 4115570

Opnunartími:
mán - fös: 13.40 - 17.00

Vefsíða: https://tjornin.is/fristundaheimili-6-9-ara/draumaland-2/

Draumaland er frístundaheimili fyrir börn í 1.-4. bekk í Austurbæjarskóla. Draumaland er starfrækt eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur til kl. 17:00, staðsett við Barónsstíg 32, 101. Reykjavík. Forstöðumaður Draumalands er Kristófer Nökkvi Sigurðsson kristofer.nokkvi.sigurdsson@rvkfri.is Aðstoðarforstöðumaður er Þorbjörg Roach thorborg.roach.gunnarsdottir@rvkfri.is Leiðarljós frístundaheimilanna er að hver einstaklingur fái að njóta sín og þroskast í umhverfi sem einkennist af ÖRYGGI – VIRÐINGU – VÆNTUMÞYKJU – VELLÍÐAN Lögð er áhersla á að þroska félagslega færni í samskiptum í gegnum leik og starf sem og virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu. Frístundaheimilin leitast við að nota lýðræðislega starfshætti, efla hæfni barnanna til að móta sér sjálfstæðar skoðanir og hafa áhrif á umhverfi sitt og aðstæður. Þjónusta við börn með sérþarfir er skipulögð í hverju frístundaheimili fyrir sig í samvinnu við foreldra, skóla og aðra fagaðila er tengjast börnunum.

#borginokkar