Reykjavík early music festival
  • Heim
  • Reykjavík Early Music Festival

Reykjavík Early Music Festival

26.-28. mars 2024

Reykjavík Early Music Festival er fyrsta alþjóðlega barokkhátiðin í Reykjavík og verður haldin í fyrsta skipti í Hörpu, dagana 26.-28. mars 2024. Hátíðin er einstakur vettvangur fyrir samstarf íslenskra og erlendra tónlistarhópa sem sérhæfa sig í upprunaflutningi barokktónlistar. Listræn stjórn hátíðarinnar er í höndum Elfu Rúnar Kristinsdóttur, fiðluleikara og eins stofnanda Barokkbandsins Brákar.

Á hátíðinni er boðið upp á fjölbreytta og vandaða tónleikadagskrá með heimsklassa tónlistarfólki sem flytja barokktónlist í ólíkum rýmum Hörpu. Haldnir verða fernir glæsilegir kvöldtónleikar með hópunum Arte dei Suonatori, Barokkbandinu Brák, Amaconsort og kammerhópnum Consortico. Frábærir einleikarar koma fram á hátíðinni: stórstjarnan Rachel Podger, franski sellóleikarinn Vladimir Waltham, sópransöngkonan Herdís Anna Jónasdóttir og fiðluleikarinn Elfa Rún Kristinsdóttir. Auk þess fer fram opið meistaranámskeið með Rachel Podger í samvinnu við MÍT og LHÍ í Norðurljósum.

Farðu inná heimasíðu hátíðarinnar til að sjá dagskrána 

#borginokkar