Dass

Dass Reykjavík

Vegamótastígur 7, Reykjavík 101, 778 00 68

Opnunartími:
mán - fim: 7.00 - 23.00
fös - lau: 7.00 - 1.00
sun: 7.00 - 23.00

Vefsíða: https://www.facebook.com/dassrvk

Dass Reykjavík er glænýr veitingastaður á Vegamótastíg 7 í hjarta Reykjavíkur

Staðurinn tekur allt að 100 manns til sætis inni, 50 manns í sæti á útipallinum og 150 - 250 manns í standandi þjónustu þegar báðar hæðirnar sem og útisvæði eru talin með.

Hönnun er með þeim glæsilegri á landinu þar sem mikil lofthæð, falleg náttúrulega birta og sambland af húsgögnum í mildum haust tónum og grófar steypusúlur, sem ná frá botni til lofts, skapa einstaka upplifun, sjónrænt samspil og fallegt jafnvægið andrúmsloft.

Á Dass Reykjavík er boðið uppá morgunverð frá klukkan sjö á morgnanna, hádegisverð frá klukkan tólf og kvöldverð frá klukkan sautján. Að kvöldverði loknum er boðið uppá "lounge" stemningu þar sem gestir geta gætt sér á úrvali af glæsilegum kokteilum, sem og yfir fimmtíu framandi vínum, við mjúka "house" tónlist sem setur tóninn í skemmtilega og þægilega stemningu.

Hvort sem það eru hópar í kvöldverð, brúðkaupsveislur, viðskiptafundir, afmælisveislur eða tónleikar, Dass Reykjavík er staðurinn.

#borginokkar