vinasel_hus

Vinasel Frístundaheimili

Kleifarsel 28, Reykjavík 109, 4117522

Opnunartími:
mán - fös: 13.40 - 17.00

Vefsíða: https://midberg.is/fristundaheimili-6-9-ara/vinasel/

Vinasel er frístundaheimili fyrir börn úr 1.-2. bekk í Seljaskóla og er rekið af frístundamiðstöðinni Miðbergi. Forstöðumaður er Magnús Loftsson. Aðstoðarforstöðumaður er Jolanta Maszkiewicz.

Í Vinaseli er opið alla daga frá kl .13:40 og til kl. 17:00. Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla og páskaleyfi er opið allan daginn í Vinaseli frá kl. 08:00 – 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum.
Vinasel er lokað í vetrarleyfi skólans.

Frístundaheimilið Vinasel er starfrækt í sér húsi í Seljaskóla. Við höfum haft aðgang að félagsmiðstöð, íþróttasal, tölvuveri og bókasafni skólans.

#borginokkar