G5581-Safn-900x600

Listasafn Sigurjóns Ólafssonar

Laugarnestangi 70, Reykjavík 105, 5532906

Vefsíða: http://lso.is/

Listasafn Sigurjóns Ólafssonar hýsir höggmyndir og teikningar eftir Sigurjón Ólafsson myndhöggvara ásamt heimildum um listamanninn og er miðstöð rannsókna á list hans. Safnið var stofnað af Birgittu Spur, ekkju listamannsins 1984 og var rekið sem sjálfseignarstofnun til ársins 2012, en er nú deild innan Listasafns Íslands.

Auk þess að kynna list Sigurjóns býður safnið upp á sýningar á verkum annarra listamanna og yfir sumartímann eru vikulega haldnir tónleikar sem skipa sér fastan sess í menningarlífi Reykjavíkurborgar.
Heimasíða safnsins www.lso.is

Sigurjón Ólafsson fæddist á Eyrarbakka árið 1908 og lést í Reykjavík 1982. Hann vann jafnhliða abstrakt- og raunsæisverk og er talinn einn fremsti portrettlistamaður sinnar samtíðar.

#borginokkar