jóladalurinn
  • Heim
  • Jóladalurinn - Jól í Laugardal

Jóladalurinn - Jól í Laugardal

Ljósadalurinn í Fjölskyldugarðinum.

Það er margt hægt að gera sama í Laugardalnum í kringum hátíðina. Fjölskyldu- og Húsdýragarðurinn er svo fallega skreyttur og gaman fyrir fjölskyldur að labba þar um ásamt því að kíkja ef til vill á sýningu í Ásmundarsafni áður en það er skellt sér í sund! 

Lengri opnunartími á aðventunni

Jólaljós hafa verið sett upp um allan garð og töluvert bæst við svo nú er ævintýri líkast að ganga um garðinn í rökkrinu, heimsækja dýrin og sjálfan jólaköttinn. Útigrillin verða opin fyrir þau sem vilja grilla kvöldmatinn úti í ljósadýrðinni og öllum er boðið í hringekjuna á kvöldopnunum í desember.

Kvöldopnanir verða í desember líkt og undanfarin ár en opið verður til klukkan 20 föstudaga til sunnudaga frá 1.desember til jóla. Verkefnið Jólaland í Laugardalnum var kosið í hverfakosningum í ár og því býður „Hverfið Mitt“ öllum að heimsækja jólaljósaskreyttan Fjölskyldu- og húsdýragarðinn frá kl. 17 – 20 föstudaga til sunnudaga frá 1. desember til jóla. Hefðbundinn opnunartími er annars alla daga frá kl. 10 til 17 og þá gildir hefðbundinn aðgangseyrir. 

Grasagarðurinn

Það er yndislegt að fá sér göngutúr á ferskum vetrardegi í Grasagarðinum og enda á heitu kakói í Café Flóru. Athuga að opnunartími á veturna er frá 10 -15  

Ásmundarsafn

Skoðaðu sýninguna Eftir Stórhríðina eftir Unndór Egil Jónsson á Ásmundarsafni. Á sýningunni mætast myndhöggvarar tveggja tíma í samtali sem veitir nýja sín á arfleifð Ásmundar Sveinssonar ásamt því að kynna fyrir gestum ný verk starfandi listamanns.

Safnið er opið alla daga frá 13-17 

Smelltu hér fyrir frekari upplýsingar

Skautahöllin

Það er fátt jólalegra en að svífa á skautum á góðu svelli með fjölskyldu og ástvinum. Þið getið fylgst með opnunartímum í Skautahöllinni á heimasíðu þeirra hér.

 

 

#borginokkar