desember 14, 2021

Útskriftarsýning Ljósmyndaskólans

Útskriftarsýning Ljósmyndaskólans opnar þann 18. desember 2021 í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Að þessu sinni útskrifast átta nemendur frá Ljósmyndaskólanum. Útskriftarverk þeirra eru fjölbreytt enda spanna viðfangsefni og aðferðir nemenda vítt svið.

Þau takast þar á við margvísleg viðfangsefni út frá ólíkum forsendum, mismunandi nálgun, listrænni sýn og fagurfræði. Verkin á sýningunni endurspegla þannig gróskuna í samtímaljósmyndun og fjölbreytta möguleika sem felast í ljósmyndamiðlinum.

Vegna samkomutakmarkana verður ekki um formlega opnun að ræða og er fyrsti opnunardagur sérstaklega hugsaður fyrir sýnendur, samnemendur, vini og vandamenn. Aðrir boðsgestir eru beðnir um að bíða með að koma á sýninguna þar síðar á sýningartímabilinu. Sýningin er öllum opin frá og með 19. desember.

Sýningin stendur frá 18. desember 2021 til 9. janúar 2022. Aðgangur er ókeypis.

#borginokkar