september 8, 2021

Upplifunarbíó í Sundhöllinni á RIFF

Sundbíó hefur svo sannarlega fest sig í sessi sem einn af sérviðburðum RIFF og í ár verður engin breyting þar á

Föstudagskvöldið 1. október kl. 19:30 verður hægt að hreiðra um sig í lauginni og horfa á költ klassíkina “The Life Aquatic with Steve Zissou – Á sjó með Steve Zissou. Eins og undanfarin ár verður mikið lagt í upplifunina og gestir mega búast við óvæntum uppákomum. Myndin á vel við þar sem hún gerist að mestu á vatni eða neðansjávar og allir ættu að yfirgefa Sundhöllina með bros á vör! 

#borginokkar