ágúst 27, 2021

Fyrsti útivistarskáli Íslands 100 ára

Afmælisathöfn á Árbæjarsafni sunnudaginn 29. ágúst kl. 13

Skátar fagna 100 ára afmæli fyrsta útivistarskálans á Íslandi næstkomandi sunnudag 29. ágúst. Afmælisathöfnin hefst kl 13:00 og er á vegum Bandalags íslenskra skáta og Skátasambands Reykjavíkur í samstarfi við Árbæjarsafn. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri býður gesti velkomna og forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, flytur ávarp.

Dagskrá:

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri býður gesti velkomna.

Upphafsorð, gestir boðnir velkomnir: Ævar Aðalsteinsson.

Ávarp forseta Íslands, hr. Guðna Jóhannessonar, verndara skátahreyfingarinnar.

Skátakórinn: Kórsöngur og skátasöngvar. 

Sagan talar, Væringjaskáli - Lækjarbotnaskáli: Haukur Haraldsson.

Skátaþrautir og „skátaæfingar.“

Skátakakó í tjaldi.

Það var mikið þrekvirki þegar Skátafélagið Væringjar í Reykjavík reisti veglegan útivistarskála við Lækjarbotna, austan Reykjavíkur. Skálinn var byggður í sjálfboðavinnu undir leiðsögn trésmiða. Þegar skálinn var reistur færði hann skátum aukna möguleika til útivistar, rötunar og leikja. Árið 1962 var skálinn fluttur á Árbæjarsafn en á þeim tíma var búið að reisa nýjan og stærri skátaskála í Lækjarbotnum. Í dag stendur skálinn enn keikur og fallegur í umsjón Árbæjarsafns.

#borginokkar