september 27, 2021

Debby Harry mætir á Riff!

Poppdrottningin Debbie Harry aðalsönkona Blondie verður heiðursgestur á RIFF í tilefni af mynd hennar Blondie: Að lifa í Havana sem sýnd verður á hátíðinni sem hluti af flokknum Tónlist í forgrunni.

Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að Debbie Harry aðalsöngkona Blondie mun heiðra okkur með viðveru sinni á sýningu myndar hennar Blondie: Að lifa í Havana. Myndin fylgir hjómsveitinni eftir þar sem hún leggur land undir fót á Kúbu til að halda tvenna tónleika þar að beiðni Menningarráðuneytis Kúbu. Það er kvikmyndaleikstjórinn og fjöllistamaðurinn Rob Roth sem leikstýrir en hann er þekktur fyrir að nýta sér margskonar listform í verkum sínum.

Stutttónleikamyndin Blondie: Að lifa í Havana verður sýnd Laugardaginn 2. október klukkan 17:00 í Bíó paradís og mun Debbie Harry vera viðstödd sýninguna og eiga samtal með áhorfendum og Andreu Jónsdóttur í kjölfar sýningarinnar.

#borginokkar