• Heim
  • Fréttir
  • Árstíðir birkisins í Ljósmyndasafni Reykjavíkur
febrúar 1, 2022

Árstíðir birkisins í Ljósmyndasafni Reykjavíkur

Sýning ljósmyndarans Elíasar Arnars „Árstíðir birkisins“ opnar í Skotinu í Ljósmyndasafni Íslands 3. febrúar næstkomandi, kl 16. Sýninging samanstendur af tólf innrömmuðum ljósmyndum af íslenska birkinu í öllum árstíðum.

Sýningin er einskonar samþætting á landfræðilegum og heimspekilegum nálgunum á trjátegund sem hefur spilað stórt hlutverk í menningu, sögu og umhverfi á Íslandi.

Ætlunin með sýningunni er að varpa ljósi á mikilvægi birkisins og hlutverki þess í íslenskum vistkerfum og á sama tíma er ljósmyndaranum hugleikið að ýta undir frekari vernd og/eða endurheimt á þeim vistkerfum sem einkenndu Ísland fyrir landnám.

Gögn sýna að Ísland var að miklu leyti þakið birkiskógum við landnám og að tréð hafi að mörgu leyti verið lifibrauð fólks þar sem nýting á borð við eldivið, byggingarefni, beit o.þ.h. var fólki lífsnauðsynleg vegna einangrunar landsins. Í dag er þetta auðvitað álitið sem ósjálfbær nýting á viðkvæmri auðlind en spurningar vakna um það hvort saga og menning landsins hefði verið öðruvísi ef þetta hefði ekki verið gert.

Elías Arnar er sjálfstætt starfandi ljósmyndari, landvörður og landfræðinemi við Háskóla Íslands. Verk hans sækja innblástur úr landfræðilegum fyrirbærum sem varpa ljósi á samspil manns og náttúru. Með verkum sínum vill Elías vekja fólk til umhugsunar um útivist, náttúrutengingu og umhverfismál almennt. Lykilþáttur í nálgun hans að listsköpun er að huga að veru- og þekkingarfræðilegum hugmyndum um landfræðileg fyrirbæri og ýta undir hugmyndir um náttúruna sem síbreytilegar fremur en fastmótaðar. Sýningin „Árstíðir birkisins“er hluti af þeirri nálgun þar sem ljósi er varpað á birkið í síbreytilegu loftslagi árstíðanna á Íslandi og sýnir fólki lítinn og einfaldan hluta af náttúrunni með augum landfræði-ljósmyndara.

Nánari upplýsingar um sýninguna má finna hér á vef safnsins 

 

#borginokkar