extreme
  • Heim
  • Extreme Chill tónlistarhátíð

Extreme Chill tónlistarhátíð

Hátíðin fer fram í 15. skiptið árið 2024. Ekki er enn búið að ákveða dagsetningar og staðsetningar. 

Tónlistarhátíðin Extreme Chill fór fram í Reykjavík dagana 21-24 September 2023 en það var í fjórtánda skiptið sem hátíðin var haldin.
Hátíðin átti sér stað á nokkrum mismunandi stöðum í miðborginni:
Gamla Bíó, Iðnó, KEX, SKÝ, Space Odyssey. ofl.

Í ár kemur mikill fjöldi listamanna fram á hátíðinni, Þarna koma saman ólíkir listamenn frá tilraunakenndum listamönnum til klassískrar listamanna. Þ.á.m. 
Kali Malone - Felicia Atkinson - Gigi Masin - Puse Mary - Patricia Wolf - Huma Utku - Sideproject - Gunnar Jónsson Collider - Ronja - Rauður, Iris Thorarins ofl.

Extreme Chill er hátíð sem setur ávallt markmiðin hærra með hverju ári og hefur nú verið haldin bæði í Berlín og víða um land og hefur líka verið í samstarfi við ýmsar hátíðir bæði hérlendis og erlendis.

Markmið hátíðarinnar er að kynna íslenska og erlenda raftónlistarmenn og tengja saman ólík listform, hljóðheim raftónlistarinnar og lifandi myndheim. Að tengja saman erlenda og innlenda tónlistar- og videó/myndlistarmenn, ólík listform, hljóðheim og lifandi myndheim, og sköpun þeirra ásamt því að vekja athygli á rafrænni Reykjavík, raftónlistarhöfuðborg Íslands.

Hátíðar passinn kostar aðeins 14.900 kr og gildir á alla 3 dagana.

“3 daga tónlistarveisla þar sem íslenskir og erlendir listamenn með ólíkan bakgrunn á öllum aldri mætast í sköpun sinni undir áhrifum íslenskrar náttúru. Þetta verður leyndardómsfullt ferðalag um rafræna Reykjavík.”

Extreme Chill Festival hefur áður verið styrkt af Kraumi, Ýli, Rannís Tónlistarsjóði, Iceland music Export (IMX) auk sveitarfélaga á því svæði sem hún hefur verið haldin á.

Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu hátíðarinnar.

 

#borginokkar