Sjomannadagurinn

Sjómannadagurinn í Hafnarfirði

Fornubúðir 8, 220 Hafnarfjörður

Dagsetningar
Flensborgarhöfn
04, júní 2023
Opið frá: 13.00 - 17.00

Vefsíða https://hafnarfjordur.is/vidburdur/sjomannadagurinn-i-hafnarfirdi-2023/
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Hátíðarhöld í Hafnarfirði á Sjómannadaginn 4. júní fara fram við Flensborgarhöfn. Við hvetjum Hafnfirðinga og gesti þeirra til þess að gera sér ferð niður að höfn og njóta þess sem höfnin, sem bærinn er kenndur við, hefur upp á að bjóða. Fiskasýning Hafrannsóknastofnunar verður á svæðinu fyrir framan höfuðstöðvar stofnunarinnar á Háabakka og boðið uppá opið hús á fyrstu hæð. Hægt verður að skoða sýnishorn af fiskum og hryggleysingjum, allt frá algengum nytjafiskum eins og þorski og ýsu til sjaldséðari tegunda. Hafnarfjarðarhöfn býður uppá skemmtisiglingu á hálftíma fresti, Björgunarsveit Hafnarfjarðar setur upp björgunarleiktæki, kajakar og árabátar verða tiltækir hjá siglingaklúbbnum Þyt, skemmtidagskrá fer fram við Flensborgarhöfn og aflraunamenn etja kappi og sterkasti maður á Íslandi verður krýndur í lok dags. Í hlýlegum verslunum og listagalleríum við höfnina er hægt að nálgast hönnun og handverk hafnfirskra listamanna, vinalegir veitingastaðir og kósý kaffihús í nágrenni hafnarinnar eru rómuð fyrir góðar veitingar. Á Strandstígnum hefur verið komið fyrir nýrri ljósmyndasýningu Byggðasafnins, í Bookless Bungalow er sýning um tímabil erlendu útgerðanna og í Siggubæ er hægt að sjá sýnishorn frá heimili sjómanna í Hafnarfirði á fyrri hluta 20. aldar.

Svipaðir atburðir

Táknmálsleiðsögn um Árbæjarsafn
Sögustund og drekaföndur
Naglinn | Caring/shearing
Umhverfishetjur! Kakó og plokk
U N D U R – Ljósmyndasýning
Jörðin er rúmið mitt
Anime klúbbur fyrir 13-16 ára
Spilum og spjöllum á íslensku
Sýning | Að halda þræðinum
Leikhúskaffi | Með guð í vasanum
Smiðja | Barmmerki
Listaverka- og skrautmunaskiptimarkaður
Reykjavík ... sagan heldur áfram│Aðalstræti 10
J.S. Bach á þriðjudagskvöldum 20:00 - 20:30
Bambaló tónlistarstund afrit
Karólína vefari │Sýning í Kornhúsinu
Leiðsögn │ Árbæjarsafn
Lífið á landnámsöld

#borginokkar