Leiðsögn │ Árbæjarsafn

Kistuhylur 4, 110 Reykjavík

Dagsetningar
Árbæjarsafn
17, mars 2021 - 23, desember 2023 (sjá dagatal fyrir aðrar dagsetningar)
Opið frá: 13.00 - 14.00

Vefsíða https://borgarsogusafn.is/arbaejarsafn
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Leiðsögumaður fer með gesti í öll helstu hús Árbæjarsafns og segir frá sögu þeirra. Árbæjarsafn er útisafn sem var stofnað árið 1957 en auk Árbæjar eru þar yfir tuttugu hús, sem mynda torg, þorp og sveit. Í Árbæjarsafni er leitast við að gefa hugmynd um byggingalist og lifnaðarhætti í Reykjavík á 19. og 20. öld. Hvert og eitt hús geymir annaðhvort sjálfstæða sögusýningu eða þá að þar er sýnt dæmigert heimili frá ákveðnu tímabili. Á safninu má einnig sjá gamaldags verkstæði ýmiskonar þar sem sjá má dæmigerða aðstöðu, tækni og tól.

Svipaðir viðburðir

Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10
J.S. Bach á þriðjudagskvöldum 20:00 - 20:30
uppreisn

#borginokkar