Græna augað radíóklúbbur
Opið frá: 21.00 - 22.30
Vefsíða
http://www.mengi.net
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu
Græna augað radíóklúbbur er samansafn af útvarps áhugafólki sem kemur til með að stýra frásagnar- og hlustunarviðburðum í Reykjavík, síðasta miðvikudag hvers mánaðar. Fyrsti viðburðurinn er í samstarfi við In the Dark hópinn frá London.
ITD er samstarfsverkefni milli nýrrar kynslóðar útvarpsfólks sem hafa það markmið að koma af stað byltingu á viðhorfi fólks á töluðu máli í útvarpi. Þetta hyggjast þau framkvæma með því að taka útvarpið út úr sínu hefðbundna samhengi og fagna því á nýjan og spennandi máta.
Sýningarstjóri ITD í London, Rosanna Arbon og Þorgerður E. Sigurðardóttir frá hópnum Græna Auganu, hafa varið síðustu vikum í að kasta á milli sín sínu uppáhalds útvarpsefni til að setja saman efnisskrá kvöldsins.
Viðburðurinn verður á ensku og hefst kl. 21.
Miðaverð er 1.000 krónur.