• Heim
  • Vesturbæjarlaug

Vesturbæjarlaug

Vesturbæjarlaug var tekin í notkun árið 1961. Stærð byggingarinnar er 850 fermetrar. Á svæðinu er sundlaug, barnalaug, fimm heitir pottar, eimbað og gufubað auk nokkurra leiktækja. Árið 2014 var bætt við tvöföldum potti.

Árið 1953 var skipað í tvær nefndir vegna byggingar Vesturbæjarlaugar. Önnur var bygginganefnd, skipuð af bæjarstjórn Reykjavíkur, hin var fjáröflunarnefnd tilnefnd af Íþróttabandalagi Reykjavíkur. Fjáröflunarnefndin var með söfnun meðal Vesturbæinga en einnig söfnuðu stúlkur úr Kvennaskólanum fjármunum vegna byggingar sundlaugarinnar.

Í árslok 1953 höfðu safnast 150 þúsund krónur. Ekki var eingöngu ætlunin að byggja fyrir söfnunarfé. Fjármagn kom einnig frá Reykjavíkurbæ. Þetta framtak varð til þess að hafist var handa við bygginguna. Söfnunarféð var notað til kaupa á listaverki sem málað var á loft og veggi í afgreiðslusal og til kaupa á stóru fiskabúri sem sett var upp í anddyri laugarinnar og var gestum til augnayndis í fjöldamörg ár.

Nýjum tvöföldum potti með nuddstútum var bætt við árið 2014.

Stóri nuddpottur og vaðlaug eru ekki með varmaskipti heldur eru þeir alvöru „thermal pools“ af gamla skólanum. Með 4 m3 jöfnunartankar við þá og öll nýjustu tölvur/tæki til að stýra hita og vatnsgæðum

 

#borginokkar