Ragnar_Th

Viðey

Viðey, Reykjavík 104, 411 6360

Opnunartími:
mán - sun: 10.15 - 18.30

Vefsíða: https://borgarsogusafn.is/p/videy

Hér má upplifa þúsund ára sögu og njóta einstakrar náttúru. Viðey er perla sem ber að gæta og varðveita. Sýnum nærgætni í umgengni við hana svo hægt sé að koma og njóta náttúru hennar aftur og aftur. Eyjan er afar gróð­ur­sæl og var öldum saman talin ein besta bújörð lands­ins. Þar bjuggu mennta­menn og áhrifa­menn í íslensku sam­fé­lagi og þar sjást enn ummerki túna og hlað­inna garða.

Eyjan skipt­ist í tvo hluta, Heimaey og Vesturey sem tengj­ast með Eiðinu. Á austurhluta Heimaeyjar er að finna rústir þorps frá tímum Milljónafélagsins þegar útgerð og mann­líf stóð þar í miklum blóma. Nú standa þar eftir aðeins tvær bygg­ingar og rústir einar sem minna á liðna tíma. Á Heimaey standa ein elstu hús lands­ins, Viðeyjarkirkja og Viðeyjarstofa sem áður hýstu heldri fjöl­skyldur en eru nú opin almenn­ingi og þar er einnig rek­inn veit­inga­staður. Sagan drýpur af hverju strái í Viðey en eyjan er jafn­framt útivista­svæði í eigu Reykvíkinga og öllum er vel­komið að koma og njóta kyrrðar og nátt­úru eyjarinnar. 

Friðarsúlan

Friðarsúlan í Viðey er hugarfóstur myndlistarmannsins, tónlistarmannsins og friðarsinnans Yoko Ono og er hugsuð sem leiðarljós fyrir heimsfrið. Verkið er í formi „óskabrunns“ en á hann eru orðin „Hugsa sér frið“ grafin á 24 tungumálum. Upp úr brunninum stígur ljóssúla sem er saman sett úr fimmtán geislum sem sameinast í einu sterku ljósi. Sex ljósgeislanna fara lárétt um göng á palli í kring um brunninn og er endurkastað upp á við með speglum. Pallurinn er þakinn þrenns konar íslensku grjóti – líparíti, grágrýti og blágrýti. Þessi hönnun er táknræn tjáning Yoko Ono á leiðbeiningarverki sem hún gerði árið 1965 og nefnist Ljóshús. „Ljóshúsið er tálsýn, byggt úr tæru ljósi. Sláðu upp strendingum á ákveðnum tíma dags, við ákveðna kvöldbirtu sem streymir gegnum strendingana, og ljóshúsið birtist í miðju vallarins eins og táknmynd, nema hvað þessi táknmynd býður þér inngöngu ef þú vilt. Svo kann að fara að ljóshúsið birtist ekki daglega, alveg eins og sólin skín ekki daglega.“

Kveikt er árlega á Friðarsúlunni á eftirfarandi dögum:

9. október - 8. desember (frá fæðingardegi John Lennons til dánardægurs hans)

21. - 31. desember

18. febrúar

20. - 27. mars

#borginokkar