BBS%20Gro%E2%95%A0%C3%BCfin%20-%20afrit%20%28Custom%29%20%28Custom%29%20%28Custom%29

Borgarbókasafnið | Menningarhús Grófinni

Tryggvagata 15, Reykjavík 101, 411 6100

Vefsíða: https://borgarbokasafn.is/bokasofn/grofin

Miðbæjarsafnið okkar er í Grófarhúsi við Tryggvagötu. Þar ráðum við ríkjum á 1., 2. og 5. hæð, en í húsinu er einnig Borgarskjalasafn og Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Það er oft líflegt hjá okkur enda boðið upp á fjölmarga viðburði, smiðjur og sýningar. Á sama tíma er auðvelt að flýja eril miðborgarinnar, grúska á lessvæðinu og týna sér í hillunum. Þér er velkomið að nýta aðstöðuna á bókasafninu eins og þú vilt – til að dvelja, hitta aðra eða halda viðburð. Fjölbreyttur safnkostur á ýmsum tungumálum í boði.

Komdu og finndu þinn uppáhaldsstað á safninu!

Smellið hér fyrir afgreiðslutíma

#borginokkar