BBS%20Arbaer

Borgarbókasafnið | Menningarhús Árbæ

Hraunbær 119, Reykjavík 110, 4116250

Vefsíða: https://borgarbokasafn.is/bokasofn/arbaer

Í boði er fjölbreytt úrval af bókum, tímaritum og öðrum safnkosti og við erum að sjálfsögðu boðin og búin að aðstoða við val og leit að efni. Þér er velkomið að nýta aðstöðuna á bókasafninu eins og þú vilt – til að dvelja, hitta aðra eða halda viðburð. Við vekjum sérstaka athygli á Verkstæðinu þar sem notendur geta gert við, hannað og saumað það sem þeim dettur í hug á saumavélarnar okkar. Af föstum dagskrárliðum má nefna Prjónakaffið okkar sívinsæla, Skrifstofuna, samfélag skrifandi fólks, Söngstundirnar og Leshringinn.

Og svo er alltaf heitt á könnunni!

Smellið hér fyrir afgreiðslutíma

#borginokkar