skautar

Skautahöllin

Íþróttabandalag Reykjavíkur annast rekstur Skautahallarinnar í Laugardal samkvæmt samningi við borgaryfirvöld. Skautahöllin er mikið mannvirki, rúmlega 3.700 fermetrar að stærð, þar af er sjálft svellið 1.800 fermetrar. Skautahöllin tekur allt að 1.000 manns í sæti. Mikil áhersla hefur alla tíð verið lögð á að almenningur hafi greiðan aðgang að höllinni en jafnframt hefur Skautafélag Reykjavíkur sína æfinga og keppnisaðstöðu í húsinu.

Grunnskólar höfuðborgarsvæðisins hafa nýtt sér aðstöðuna í miklum mæli og virðist sem skautaíþróttin eigi miklum vinsældum að fagna hjá grunnskólanemum. Skautafélag Reykjavíkur æfir í Skautahöllinni. Félagið býður upp á íshokkíæfingar og listskautaiðkun fyrir fólk á öllum aldri.

ALMENNUR OPNUNARTÍMI SKAUTAHALLARINNAR Í LAUGARDAL Í VETUR ER SEM HÉR SEGIR:

MÁNUDAGUR

13:00-14:30

ÞRIÐJUDAGUR

13:00-14:30

MIÐVIKUDAGUR

13:00-14:30

FIMMTUDAGUR

13:00-14:30

17:00-19:00

FÖSTUDAGUR

13:00-14:30

LAUGARDAGUR

13:00 -17:00

SUNNUDAGUR

13:00 - 17:00

Sjá meira

#borginokkar