Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóníuhljómsveit Íslands var stofnuð vorið 1950 og hefur um langt árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum enda fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis.

Á hverju starfsári heldur hljómsveitin um 100 tónleikai, m.a. áskriftartónleika með heimsþekktum stjórnendum og einleikurum sem útvarpað er beint á Rás 1, fjölskyldu- og skólatónleika ásamt því að hljóðrita fyrir innlend og erlend útgáfufyrirtæki. Hljóðritanir hljómsveitarinnar hafa komið út m.a. á vegum Deutsche Grammophon, Chandos og BIS, og hafa hlotið fjölda viðurkenninga auk tilnefningar til Grammy-verðlauna fyrir besta hljómsveitardisk.

Hljómsveitin hefur komið fram á tónleikum við góðan orðstír m.a. í Bandaríkjunum, Þýskalandi, Frakklandi og Japan. Í nóvember 2019 hélt hljómsveitin í velheppnaða tónleikaferð til Þýskalands og Austurríkis með Daníel Bjarnasyni aðalgestastjórnanda hljómsveitarinnar og Víkingi Heiðari Ólafssyni píanóleikara.

Sjá meira

#borginokkar