
Óperudagar
Markmið hátíðarinnar er að standa fyrir vönduðum og fjölbreyttum viðburðum á venjulegum og óvenjulegum stöðum; stuðla að nýsköpun og tilraunum, efla starfsgrundvöll söngvara og þeirra samstarfsfólks; stuðla að innlendu og alþjóðlegu samstarfi og taka vel á móti nýjum og gömlum áhorfendahópum. Lögð er áhersla á samstarf við nemendur og áhugafólk sem og listafólk úr öðrum greinum og að efna til samtals um fagleg málefni. Óperudagar er ekki aðeins óperuhátíð heldur hátíð allra greina klassískrar sönglistar. enda syngja klassískir söngvarar jú alls konar tónlist!