Hikandi lína – listamannsspjall

Strandgata 34, 220 Hafnarfjörður

Dagsetningar
Hafnarborg – menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar
18, júní 2023
Opið frá: 13.00 - 14.00

Vefsíða https://hafnarborg.is
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Sunnudaginn 18. júní kl. 13 mun Elísabet Brynhildardóttir, myndlistarmaður, taka á móti gestum og segja frá verkum sínum á nýopnaðri sýningu hennar, Hikandi línu, sem stendur yfir í safninu í sumar. Á sýningunni eru sýnd bæði ný og eldri verk þar sem Elísabet gaumgæfir aðgerðina að teikna og kannar hina óteljandi möguleika línunnar.

Teikningin er fyrsta sjónræna viðbragð okkar við heiminum löngu áður en við lærum að skrifa og virkar hún sem eins konar vörpun ímyndunarafls og hugsana í efni. Fáir miðlar myndlistarinnar komast eins nálægt hrárri sýn listamannsins eins og teikningin – hún er beintenging við hugsunina og varpar jafnframt ljósi á afar náið samband manns og verkfæris. Þá skoðar Elísabet tímann, tilfinninguna og skynjunina að baki teikningarinnar, eða eins og listamaðurinn Richard Serra sagði eitt sinn: „Þú býrð ekki til teikningu – þú teiknar“.

Elísabet Brynhildardóttir (f. 1983) vinnur með fjölbreytta miðla, þótt teikning og skúlptúr séu þar mest áberandi. Í verkum sínum skoðar hún samband okkar við efnisheiminn og þolmörk þess, ásamt því að velta fyrir sér hugmyndum um tíma og hverfulleika. Þá hefur hún tekið þátt í fjölbreyttum sýningum og öðru myndlistartengdu starfi og hafa verk hennar meðal annars verið sýnd í i8 Gallery, Listasafninu á Akureyri, Kling & Bang, Skaftfell og Nýlistasafninu. Elísabet útskrifaðist með BA-gráðu í myndlist árið 2007 frá The University College for the Creative Arts í Bretlandi.

Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.

Svipaðir viðburðir

Páskaeggjaleit í Viðey
Sýningaropnun: Hugsandi haugur
Faustina - Barokkbandið Brák & Herdís Anna Jónasdóttir
Kvöldsögustund með Amaconsort
Dolcissimi diletti - Barokkhópurinn Consortico
Listamannaleiðsögn | Venjulegar myndir
Páskaeggjalitun með ÞYKJÓ
Páskabingó
Naglinn | Grein
Fimmtudagurinn langi - mars - myndlist í borginni
TENEBRAE FACTAE SUNT - Kórtónleikar á föstu
Flæðarmál
Vísar
Stuart Rich­ardson │Undir­alda
Reykjavík ... sagan heldur áfram
Föndrum og spjöllum á íslensku
Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10

#borginokkar