husid

Gulahlíð Frístundaheimili

Vesturhlíð 3, Reykjavík 105, 6955145

Opnunartími:
mán - fös: 13.40 - 17.00

Vefsíða: https://kringlumyri.is/fristundaheimili-6-9-ara/gulahlid/

Í Guluhlíð er starfrækt frístundaheimili fyrir nemendur í 1.-4. bekk í Klettaskóla. Hjá okkur opnar þegar skóladegi lýkur og lokar klukkan 17:00.

Við leggjum áherslu á að veita börnum einstaklingsmiðaða þjónustu í heimilislegu og öruggu umhverfi. Starfsmenn leggja ríka áherslu á að börnunum líði vel, skemmti sér og njóti sín. Einnig viljum við tryggja öryggi barnanna og veita þeim og foreldrum þeirra góða þjónustu. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða þjónustu þar sem hverjum og einum er mætt á sínum forsendum og leggur starfsfólk metnað í að hafa markvisst, fjölbreytt og innihaldsríkt starf í boði á hverjum degi.

Leiðarljós Guluhlíðar:
Við leggjum mikið upp úr því að vera jákvæð og sveigjanleg með fagmennsku í forgrunn. Áhersla er lögð á Virðingu, Vináttu, Sjálfstyrkingu og Skemmtun í gegnum leik og starf. Í Guluhlíð er boðið upp á fjölbreyttar tómstundir sem mæta áhugasviði hvers og eins. Lagt er upp með að efla félagsþroska barna og að þeim líði vel.

#borginokkar