hraunheimar

Hraunheimar Frístundaheimili

Hraunberg 12, Reykjavík 111, 6644522

Opnunartími:
mán - fös: 13.40 - 17.00

Vefsíða: https://midberg.is/fristundaheimili-6-9-ara/hraunheimar/

Frístundaheimilið Hraunheimar er safnfrístund fyrir börn úr 3-4. bekk í Fellaskóla og Hólabrekkuskóla og er rekið af frístundamiðstöðinni Miðbergi. Forstöðumaður er Árbjörg Ólafsdóttir (er í veikindaleyfi). Forstöðumaður er Jónína Kristín Þorvaldsdóttir. Aðstoðarmaður er Patrekur Litríkur Leó Róbertsson.

Í Hraunheimum er opið alla daga frá kl .13:40 og til kl. 17:00. Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla og páskaleyfi er opið allan daginn í Hraunheimum frá kl. 08:00 – 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum.
Hraunheimar eru lokaðir í vetrarleyfi skólans.

Frístundaheimilið Hraunheimar eru starfræktir í Hraunbergi 12.

Börnin eru sótt af starfsmönnum Hraunheimar í Fellaskóla og Hólabrekkuskóla kl. 13:40.
Alla daga er útivera fyrir 3- 4. bekk.
Fastir liðir eru íþróttasalur, útieldun, klúbba- og smiðjustarf.

Klúbba- og smiðjustarf er í boði eftir útiveru, eða á milli klukkan 15 og 16. Þá er einnig í boði að fara í val. Meðal þess sem hefur verið í boði má nefna útivistarklúbb, bakstursklúbb, spilaklúbb, LEGO-klúbb, margvíslegar listasmiðjur og föndur og margt fleira. Auk þess voru starfræktir sérstakir klúbbar í tengslum við hæfileikakeppni, leiklistar- og kvikmyndahátíðir frístundaheimilanna.

Daglega bjóðum við upp á ávexti og grænmeti frá 15.30 til 16.00. Við leggjum mikið upp úr fjölbreytilegu úrvali og höfum meðal annars haft epli, banana, appelsínur, melónur, perur, vínber, tómata, paprikur, gulrætur, gúrkur og fleira.

Boðið er upp á síðdegishressingu frá því að börnin mæta og til kl. ca. 14.20.

Reynt er að leggja áherslu á gæði hráefnis og hollustu þegar kemur að síðdegishressingunni. Stuðst er við markmið Lýðheilsustöðvar um hollustu á frístundaheimilum við gerð matseðils. Í matsalnum er vatnsvél og einnig geta börnin fengið sér léttmjólk alla daga.

#borginokkar