katakot

Kátakot Frístundaheimili

Kollagrund 2, Reykjavík 116, 5668176

Opnunartími:
mán - fös: 13.40 - 17.00

Vefsíða: https://reykjavik.is/katakot

Frístundaheimilið Kátakot er fyrir öll börn í 1. -4. bekk. Þar er börnum boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf eftir að skóladegi lýkur. Leitast er við að bjóða upp á spennandi viðfangsefni sem veita börnum útrás fyrir leik- og sköpunarþörf. Leiðarljós Kátakots er að hver einstaklingur fái að njóta sín og þroskist í umhverfi sem einkennist af hlýju, öryggi og virðingu. Lögð er áhersla á að þroska félagslega færni í samskiptum í gegnum leik og starf sem og virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu. Kátakot leitast við að nota lýðræðislega starfshætti, efla hæfni barnanna til að móta sér sjálfstæðar skoðanir og hafa áhrif á umhverfi sitt og aðstæður.

#borginokkar