fjolskylduland_opening-13

Fjölskylduland

Dugguvogur 4, Reykjavík 104, +3545772555

Opnunartími:
mán - sun: 10.00 - 18.00

Vefsíða: http://www.fjolskylduland.is

Velkomin í Fjölskylduland! Við erum heildrænn og skemmtilegur innileikvöllur fyrir yngstu börninin og fjölskyldumiðstöð með fjölda þjónustuaðila innanborðs. Fjölskylduland er fallegt, öruggt og örvandi umhverfi fyrir börn frá 3 mánaða aldri að grunnskólaaldri. Leiksvæðin okkar hvetja börn til skapandi leiks og rannsókna og Fjölskylduland er staður samveru fyrir fjölskyldur. Við og samstarfsaðilar okkar bjóðum upp á styðjandi umhverfi fyrir foreldra, verðandi foreldra og aðra umönnunaraðila og fjölskyldumeðlimi. Við bjóðum upp á ýmis námskeið, þemadaga og opna tíma í stundatöflu. Samstarfsaðilar Fjöskyldulands bjóða upp á ýmsa spennandi þjónustu í húsinu sem ætluð er sérstaklega börnum og foreldrum. Fjölskylduland er opið alla daga vikunnar - samverustaður sem svo margar fjölskyldur hafa beðið eftir. Komdu í heimsókn til okkar, komdu að leika!

#borginokkar