Músíktilraunir 1. undankvöld

Austurbakki 2, 101 Reykjavík

Dagsetningar
Harpa
25, mars 2023
Opið frá: 19.30 - 22.00

Vefsíða //www.musiktilraunir.is
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Músíktilraunir er tónlistarhátíð sem stendur yfir í 5 daga. Hátíðin á sér 40 ára sögu en fyrstu tilraunirnar fóru fram árið 1982. Ungmenni á aldrinum 13-25 ára geta sótt um þátttöku með því að senda inn umsókn á heimasíðu tilraunanna og greiða þátttökugjald. Undankvöldin eru fjögur þar sem u.þ.b. 40 hljómsveitir keppa að því takmarki að komast áfram á úrslitakvöldið.

Um 10-12 hljómsveitir komast í úrslit og hljóta efstu þrjár sveitirnar glæsileg verðlaun. Efnilegustu hljóðfæraleikararnir eru einnig valdir af dómnefnd en áhorfendur velja vinsælustu hljómsveitina með símakosningu. Undanfarin ár hefur úrslitakvöldinu verið útvarpað um land allt af Rás 2 og árið 2016 hóf Ríkissjónvarpið að streyma úrslitakvöldinu í beinni útsendingu á www.ruv.is.

Músíktilraunirnar veita frábært tækifæri til þess að fylgjast með grasrótinni í íslensku tónlistarlífi og hafa hljómsveitir á borð við Of Monsters and Men, Samaris, Vök, Mínus og Mammút borið sigur úr bítum. Undankvöldin verða 25. mars - 28. mars 2023 kl.19:30 og er miðaverð á hvert undankvöld 2000 kr.

Úrslitakvöldið er haldið 1.apríl kl.17:00 og er miðaverð 2500 kr.
Nánari upplýsingar er að finna á:

www.musiktilraunir.is

www.facebook.com/musiktilraunir

Icelandair er aðalbakhjarl Músíktilrauna.
Músíktilraunir eru styrktar af ÝLI tónlistarsjóði fyrir ungt fólk www.ylir.is.

Svipaðir viðburðir

Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10
uppreisn

#borginokkar