300632176_512501427543235_124515065

Kænan

Óseyrarbraut 2, Hafnarfjörður 220, 565 1550

Opnunartími:
mán - fös: 7.30 - 14.00
lau: 9.30 - 11.00

Vefsíða: https://kaenan.is/

Kænan opnaði í núverandi húsnæði í ágúst 1989 en þá hafði veitingahúsið verið í timburhúsi við höfnina frá 1980. Kænan er rekin með svipuðu sniði og áður, opnar snemma á morgnana þar sem boðið er upp á kaffi frá kl. 7.30 og hádegisverð sem er gríðarlega vinsæll meðal iðnaðarmanna og annarra sem vilja góðan heimilismat. Kænan býður upp á lambalæri og purusteik í hádeginu á föstudögum sem hefur notið mikilla vinsælda.

VEISLUÞJÓNUSTA
Kænan mun sem fyrr bjóða upp á veisluþjónustu, hvort heldur í Kænunni eða í öðrum húsakynnum viðskiptavina. Er Oddsteinn rómaður fyrir glæsilegar veislur og mun að sjálfsögðu bjóða upp á jólahlaðborð í desember.

Kænan er vel staðsett við smábátahöfnina og vonumst við að sjá sem flesta Hafnfirðinga líta við.

#borginokkar