Listaverkauppboð til styrktar börnum á flótta

Vonarstræti 3, 101 Reykjavík

Dagsetningar
Iðnó
17, desember 2022
Opið frá: 14.00 - 16.00

Vefsíða https://retturbarnaaflotta.weebly.com/listaverkauppboeth.html
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Þann 17. desember 2022 milli kl. 14 og 16 verður haldið listaverkauppboð í Iðnó þar sem gestir geta stutt við börn á flótta með því að fjárfesta í dásamlegum listaverkum og njóta skemmtiatriða.

Á bak við uppboðið standa félagasamtökin Réttur barna á flótta. Þau bjóða upp á stuðning, lögfræðilegan og félagslegan, við börn og barnafjölskyldur sem þurfa að leita réttar síns í samræmi við Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þau vilja tryggja viðeigandi málsmeðferð allra barna með því að skapa fordæmi í slíkum málum.

Listaverk af öllum toga verða í boði, hægt verður að bjóða í verk eftir marga af okkar bestu listamönnum en einnig verða í boði verk eftir börn sem vilja leggja sitt á vogarskálarnar og styðja við börn á flótta. Meðal listamanna sem hafa gefið verk á uppboðið eru Guðjón Ketilsson, Marit Trönqvist (myndhöfundur Astrid Lindgren), Hallgrímur Helgason, Þrándur Þórarinsson, Tinna Þorvalds Önnudóttir, Baldur Helgason, Þorvaldur Jónsson og Mireyja Samper. Fleiri bætast við á degi hverjum!

Verið öll velkomin í Sunnusal, Iðnó, Vonarstræti 3, og styðjið gott málefni meðan þið njótið tónlistar og myndlistar.

Sjá má yfirlit yfir verk á vef Réttar barna á flótta.

Áhugasöm sem ekki komast á listaverkauppboðið geta haft samband við okkur á retturbarnaaflotta@gmail.com með upplýsingar um lágmarks- og hámarksboð í verk. Þá munu sjálfboðaliðar okkar bjóða í verkið fyrir þína hönd og hækka um 5.000 kr. í senn komi einhver móttilboð, þar til hámarksupphæð þinni er náð.

Svipaðir viðburðir

J.S. Bach á þriðjudagskvöldum 20:00 - 20:30
Reykjavík ... the story continues│ Aðalstræti 10

#borginokkar