Stuttir morgunverðartónleikar – Tertulia Reykjavík

Hverfisgata 18, 101 Reykjavík

Dagsetningar
Mikki refur
14, janúar 2023
Opið frá: 09.00 - 10.00

Vefsíða https://tix.is/is/event/14537/stuttir-morgunver-artonleikar-tertulia-reykjavik/
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Gott kaffi, smjördeigshörn og tónlistarflutningur beint í æð. Strengjatríó kemur blóðinu á hreyfingu þennan laugardagsmorgun á Mikka ref við Hverfisgötu.

Kaffi og með því og stuttir morguntónleikar á Mikka ref. Mjög takmarkaður sætafjöldi.

Nánar um Tertulia Reykjavík:
Tertulia kemur kammertónlist aftur fyrir það sem hún á heima – í skemmtilegu, hátíðlegu umhverfi. Tertulia er skapandi kammertónlistarröð sem hefur á 10 árum spunnið tónlistarflutning og matarupplifun saman í New York, San Francisco og víðar. Tónleikum er komið fyrir á veitingahúsum og börum þar sem gestir eiga því ekki að venjast að heyra fyrsta flokks lifandi kammertónlist. Þannig gefst tækifæri til að snæða á eftirtektarverðum veitingastöðum og heyra framúrskarandi listamenn spila.

Tertulia kynnir nú fyrstu hátíð sína, Tertulia Reykjavík þar sem kammertónlistarmenn frá Evrópu, Bandaríkjunum og Íslandi leiða saman hesta sína á 5 mismunandi stöðum í borginni. Hægt er að kaupa miða á staka viðburði eða hátíðina í heild. Allir tónleikarnir eiga það sameignilegt að tengja saman matarupplifun og tónlist.

“A casual atmosphere amid a serious listening experience.” - Washington Post

“…luring the young and the restless to the charms of chamber music.” - The New York Times

Svipaðir viðburðir

J.S. Bach á þriðjudagskvöldum 20:00 - 20:30

#borginokkar